Foreldrasamningar

Foreldrasamningar Heimilis og skóla

Landssamtökin Heimili og skóli hafa útbúið, prentað og dreift í skólana svokölluðum „Foreldrasamningi“ sem margir foreldrar hafa ákveðið skrifa undir með velferð barnanna sinna í huga. Yfirleitt eru samningarnir gerðir í 6.-10.bekk. Atriðin sem koma fram í samningnum eru eftirfarandi:

  1. Við munum standa við lögboðinn útivistartíma.
  2. Við munum ekki leyfa eftirlitslaus partí á heimili okkar.
  3. Við munum leitast við að kynnast vinum barna okkar og hafa samráð við foreldra þeirra.
  4. Við munum ekki leyfa barni okkar að gista heima hjá vinum án þess að kanna hvort einhver fullorðinn sé heima.
  5. Við munum leitast við að upplýsa aðra foreldra ef við verðum vör við að börn þeirra reykja eða drekka.
  6. Við óskum þess að verða látin vita ef barn okkar sést reykja eða drekka.
  7. Við munum ekki leyfa unglingum að neyta áfengis eða nota önnur vímuefni á heimili okkar.
  8. Við munum ekki kaupa áfengi fyrir unglinga.

Við lýsum hér með vilja okkar til að fylgja ofangreindum reglum og setjum nöfn okkar undir því til staðfestingar.